Það er nýja markmiðið mitt.
Ég er nefnilega búin að vera að hugsa of mikið um það hvað Árósar séu eiginlega pínu boring staður og ég ætla að hætta því. Árósar er yndislegur staður. Bara bleik ský og einhyrningar.
Góðir hlutir í Árósum:
-Falleg græn svæði sem einmitt núna skarta sínum fegurstu haustlitum
Sigurvin og mamma komu í heimsókn um daginn og það var best í heimi að fá þau hingað. Við Sigurvin fórum upp í Risskov sem er risaskógur hérna í bænum. Versta var að ég var veik þegar þau komu í heimsókn og þegar ég var búin að ná mér, hafði mér tekist að smita Sigurvin af kvefinu mínu... samanber stóra stóra trefilinn á myndinni.
Einnig langar mig að tilkynna það áhugasömum að Sigurvin skrapp aðeins til Frankfurt í Germaníu meðan hann var hérna hjá mér og nældi sér í eitt stykki þjálfunartilboð þar. Og ef allt gengur að óskum í þessari þjálfun, þá erum við að fara að búa saman í Germaníu þegar ég er búin í náminu (eða fyrr ef að það er kúl skóli þar sem að hann nú endar). Vei!
-Fullt af geðveikt skemmtilegum Norðmönnum og annarra þjóða kvikyndum.
Norskar stelpur eru skemmtilegastar!
Þær gera nefnilega luftgítar í partýum með er mælikvarði á kúl... haha
-Fallegur bær, mjög krúttlegur og rómantískur.

-Ég bý miðsvæðis. Allt er innan 5-10 mínútna hjólatúrs.
Hér má sjá hvar ég á heima miðað við miðbæin sjálfan. Skrýtna rauða dótið með augað bendir á hvar ég á heima og rétt þar fyrir neðan hægra megin stendur 'Skole' og það er skólinn minn. Sjálfur miðbærinn er mjög 'compact' þannig að maður hefur ekkert að sækja í önnur hverfi bæjarins.
-Skólinn er skemmtilegur og ég er að læra rosalega mikið.
Hér er kort af skólanum. Hann er semsagt staðsettur út um allar trissur, en ég er byggingu sem er merkt númer 8.
-Nýja uppáhaldið mitt í Árósum er Listasafnið: Aros Kunstmuseum.
Þessi er táknrænn fyrir Aros safnið. Hann er á öllum bæklingunum og útgáfum safnsins. Hann er líka geðveikt flottur.
Núna er þar sýning eftir mann sem heitir Jeppe Hein og hann er að vinna rosalega mikið með skynjun. Verkin hans er mest megnis spegla og ljósaverk. Ljósin og sumir speglarnir eru tengd við hreyfiskynjara þannig að þetta er svona interactive sýning. Mjög skemmtilegt og allir, ungir sem aldnir, virtust skemmta sér konunglega yfir þessu.
Mér fannst þessi flottur. Annað hvort var ljós á stífa kassanum eins og á þessari mynd eða á kassanum sem virðist hafa bráðnað...
Ég gerðist félagi í Arosklúbbnum. Það kostaði mig 150 danskar. Þá er ég með ókeypis aðgang í heilt ár, eins oft og ég vil, sem er magnað þar sem að ein stök heimsókn fyrir námsmenn er 75 kr. Vei. Nú ætla ég að búa þarna.
Ætla að halda áfram að læra... eða glápa á einhverja innihaldslausa bandaríska þætti.
Súper jákvætt blogg, Varstu að taka vítamínin þín hehe ;)
ReplyDeletejá gaman að lesa hvað allt er jákvætt og frábært!
ReplyDeletekeep on the good work ;D viííííííiiiii...
sunna
Jákvæð, það líst mér vel á. Þau segja að þetta sé allt undir manni sjálfum komið. Það er víst engin sem gerir hamingjuna fyrir mann. Gangi þér vel ljúfust. Knús Kristín
ReplyDeleteMus. Hey hugmynd. Eg reyni ad taka upp thina jàkvaedni ef thu kemur med i marathon. OK? Stokkholmur er i juni...mér finnst thad frekar adladandi. Paris er lika ykt spenno en thad er i april...
ReplyDelete...Lýst vel á þig...Aros er æðislegt safn og stóri dúddinn er alveg amazing. Það er alltaf eins og hann sé að horfa á mann og ég er alltaf að bíða eftir því að hann standi upp:D...
ReplyDelete..Lýst ennþá betur á jákvæðnina...Århus er yndisleg (Reyndar pínu lituð;)) og vona að þú eigir eftir að eiga góðar minningar þaðan:) keep up the good word hon...sendi þér hlýjar strauma og kveðjur...hugs Inga pinga
Svo sammála þér með jákvæðnina Ragna.. Það gerir bara allt auðveldara! En nú ætla ég að halda áfram að massa möppu, fékk mega inspiration af því að skoða þína..Lofa að herma samt ekki..Mikið.. :D
ReplyDeleteLove KreppuHrabbi